Búa til námskeiðsflokka
Opnaðu bakenda kerfisins og smelltu á “Learning Management” og svo “Námskeið”.
Efst í hægra horninu er takki sem heitir “Aðgerðir”, þegar smellt er á hann birtist fellilisti þar sem hægt er að smella á “Námskeiðsflokkar”.
Eftir að smellt er á “Námskeiðsflokkar” opnast ný síða, hægra megin á henni er listi yfir þá námskeiðsflokka sem eru nú þegar til í kerfinu, en vinstra megin er hægt að fyllt inn upplýsingar um nýja flokkinn sem þú vilt búa til.
Velja þarf nafn, en það er nafn námskeiðsflokksins sem mun birtast í kerfinu. Einnig þarf að velja stuttslóð sem er þá yfirleitt bara nafn námskeiðsflokksins í lágstöfum, án séríslenskra bókstafa. Gott er að nota bandstrik til að aðskilja orð, í stað bils.
Hægt er að hlaða upp mynd (icon) fyrir flokkinn, og við mælum með að myndin sé einföld og án texta, vegna þess að heiti námskeiðsflokksins mun birtast fyrir neðan myndina. Hér er dæmi um námskeiðsflokk frá Akademias, þar sem að myndin er hvítt tákn á rauðum bakgrunni, og heiti flokksins birtist fyrir neðan.
Ekki er nauðsynlegt að velja “Parent Category” eða setja inn lýsingu, nema þið viljið. Smellið svo á “Bæta við nýjum námskeiðsflokki” takkann og nýi flokkurinn mun þá birtast í listanum hægra megin á síðunni.
Breyta/Eyða námskeiðsflokki
Þegar músin er færð yfir einhvern námskeiðsflokk í listanum hægra megin á síðunni birtast valmöguleikar undir heiti flokksins þar sem hægt er að breyta eða eyða honum.
Svör