Ef að kafli inniheldur myndband er hægt að kveikja á stillingum sem gera það að verkum að notandi kemst ekki áfram í næsta kafla nema hann hafi horft á myndbandið alveg til enda. Takkinn til þess að halda áfram í næsta kafla mun þá ekki virkjast fyrr en allt myndbandið hefur verið spilað.
Þetta er gert með því að fara á bakenda kerfisins, smella á “Learning management” og svo “Kaflar” og smella á “Breyta” fyrir neðan nafn kaflans sem inniheldur myndbandið.
Í flipanum “Stillingar” þarf svo að kveikja á stillingunni “Video Progression” og því næst vista breytingarnar með því að smella á “Save” takkann.
Svör