Búa til deild
Opnaðu bakenda kerfisins og smelltu á “Learning Management” og svo “Departments”.
Hægra megin á síðunni sérðu lista yfir þær deildir sem eru nú þegar til í kerfinu, en vinstra megin getur þú fyllt inn upplýsingar um nýju deildina sem þú vilt búa til.
Velja þarf nafn, en það er nafn deildarinnar sem mun birtast í kerfinu. Einnig þarf að velja stuttslóð sem er þá yfirleitt bara nafn deildarinnar í lágstöfum, án séríslenskra bókstafa. Gott er að nota bandstrik til að aðskilja orð, í stað bils.
Ekki er nauðsynlegt að velja “Parent Department” eða setja inn lýsingu, nema þið viljið. Smellið svo á “Add New Department” takkann og nýja deildin mun þá birtast í listanum hægra megin á síðunni.
Breyta/Eyða deild
Þegar músin er færð yfir einhverja deild í listanum hægra megin á síðunni birtast valmöguleikar undir heiti deildarinnar þar sem hægt er að breyta eða eyða henni.
Svör